Raðhús á Flórída til leigu

Forsíða

Leiðakort

Myndir

Golf

Afþreying

Leiguverð

Forsíða

Til leigu 230m2 raðhús í fjögurra íbúða húsi (byggt 2013) á vesturströnd Flórída við Mexíkóflóann.  Húsið er staðsett í Bradenton rétt við bæjarmörk Sarasota.

Í húsinu eru 3 svefnherbergi,  2 baðherbergi, eldhús, stofa, borðstofa, þvottahús og tvöfaldur bílskúr. 

Húsið er vel búin húsgögnum og tækjum.  Þrír flatskjáir eru í húsinu, heimabíó og þráðlaust net sem gestir njóta án endurgjalds.  Símtöl innan Bandaríkjanna eru einnig frí. 

Úr stofu er gengið út á afgirtar svalir (lanai) með sólhúsgögnum og rafmagnsgrilli.  Af svölunum er útsýni yfir eina af golfbrautum River Strand golfvallarins.  Í göngufæri eru tveir sundlaugagarðar.  Minni laugin er fyrir íbúa götunnar.  Stærri sundlaugin er með heitum potti, þar er jafnframt sundlaugabar, tækjasalur, 8 tennisvellir, golfbúð og klúbbhús með veitingastað.

Húsið er á svæði sem heitir Heritage Harbour.  Svæðið skiptist  upp í hverfi og þetta hús er í hverfi sem heitir River Strand og er vaktað.

Í River Strand er 27 holu golfvöllur og innan Heritage Harbour er einnig 18 holu golfvöllur sem heitir Stoneybrook.  Það tekur um 25 mínútur að aka á strönd við Mexíkóflóann.

Klúbbhúsið í River Strand

Horft yfir sundlaugargarðinn sem er í göngufæri frá húsinu

web counter
web counter